Það er okkur sérstakt gleðiefni að segja þér stuttlega frá breytingum á hinni vinsælu vörulínu Essential frá Matrix. Vörurnar þekkja flestir undir heitunum Amplify, Sleek Look, Color Smart og Curl Life
Við þessar breytingar stækka sjampóin í línunni úr 250ml. í 300ml.. Þá munu nokkrar vörur hætta og nýjar spennandi vörur koma inn í línuna.
Frá 5% til 25% LÆKKUN á söluvörum
Það ekki síðra ánægjuefni að geta á þessum erfiðu tímum kynnt umtalsverða verðlækkun til sögunnar. Í kjölfar stuðnings frá MATRIX og aðhaldi í okkar eigin rekstri getum við lækkað verðið á endurbættri vörulínu. Við lækkum almennt verð á söluvörum um 5%, en verð á sjampóum lækkar um 22% til 25%.
Kynningar á næstunni og vertu með á Facebook „Matrix á Íslandi“
Við höfum sett saman heildstæða bók með upplýsingum um Total Result vörurnar og munu sölumenn okkar kynna þær fyrir ykkur á næstu dögum og vikum. Þeir sem vilja fá senda upplýsingabók um Total Result geta hringt í okkur í 587 1888 eða sent okkur tölvupóst á panta@proact.is
Þá munum við fylgja þessum breytingum eftir á nýrri Facebook síðu: “Matrix á Íslandi” þar sem Total Result vörunum verða gerð góð skil. Endilega að heimsækja síðuna og smella á “Like” til að fylgjast með.
Proact ehf Gilsbúð 5 210 Garðabær proact@proact.is sími: 587 1888 fax: 587 1886 Forritun: Hugsandi Menn